Miðvikudagur, september 08, 2010
   
Leturstærð

Leitarvél...

Samband íslenskra harmonikuunnenda

Harmonikublaðið Sept. 2010 komið út!

sida_1_sept_2010

Harmonikublaðið fyrir september 2010 er komið út.

Mikið efni er í nýja blaðinu sem telur 24 síður. Áhugasamir eru hvattir til þess að gerast áskrifendur.

Hægt er að senda gjaldkera félagsins ósk um áskrift héðan frá síðunni. Sjá hér.

 

Harmonikudansleikur

EG-TNARÍ tilefni af útgáfu nýjasta geisladisks Örvars Kristjánssonar, 18 Gullkorn

verður útgáfudansleikur í sal Ferðafélags Íslands í  Mörkinni 6, laugardaginn 11. september. Húsið opnar kl 21.00 og dansleikurinn hefst kl. 21.30 og stendur til kl. 02.00.

Örvar mun m.a. leika lög af nýja diskinum og árita hann. Hljómsveit Einars Guðmundssonar frá Akureyri leikur síðan fyrir dansi, ásamt Loftbelgjunum og fleiri góðum vinum. Nú er tækifæri til að hitta meistara Örvar, hlýða á hann leika á þann eina hátt sem honum er lagið og fá sé snúning í góðum félagsskap.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

 

Aðalfundur S.Í.H.U. 2010

SIHU

Aðalfundur Sambands íslenskra harmonikuunnenda S.Í.H.U. verður haldinn á Hótel Örk í Hveragerði laugardaginn 18.september 2010.

Send hafa verið út fundarboð til formanna allra félaga vegna fundarinns.

Nánari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að fá hjá Jónasi Þór Jóhannssyni formanni.

   

Harmonikumót Héraðsbúa 2010 - myndir

HrasbarHarmonikumót Harmonikufélags Héraðsbúa 2010 var haldið í Brúarási, Svartaskógi um Verslunarmannahelgina.  Nú hafa verið settar inn nokkrar ljósmyndir af mótinu hér á myndasíðu félagsins. Myndirnar má finna með því að smella á "Myndir" hnappinn hér fyrir ofan eða með því að smella hér.

 

Nýtt útlit heimasíðu S.I.H.U.

Heimasa

Ný heimasíða S.I.H.U. hefur nú litið dagsins ljós. Meðal þess sem nýja heimasíðan hefur uppá að bjóða er eftirfarandi:
  • Fréttakerfi þar sem hver frétt er flokkuð og hægt er að leita að henni síðar.
  • Athugasemdafærslur við fréttir.
  • Póstlistakerfi
  • Myndaalbúm
  • Tenglasíða
  • Viðburðadagatal
  • Leitarvél
  • Könnun
  • og fleira..
   

Viðburðir - Dagatal

loader

Póstlisti S.I.H.U

Skráðu þig og fáðu reglulega sendar tilkynningar og auglýsingar.



Könnun

Ert þú ánægð/ur með Harmonikublaðið

Innri vefur SIHU